Frá Emil Björnssyni; Beiðni um áframhaldandi leigu á "Leikbæ", Árskógi lóð 1.

Málsnúmer 201405021

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 697. fundur - 08.05.2014

Tekið fyrir erindi frá Emil Björnssyni, rafpóstur dagsettur þann 5. maí 2014, þar sem Laufey Eiríksdóttir og Emil Björnsson óska eftir að leigusamningur um íbúðina í Árskógi lóð 1 verði framlengdur til 1. júní 2016 en samningurinn rennur út um næstu áramót.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni.