Samningur um gæslu á tjaldsvæðum í kringum fiskidaginn 2014

Málsnúmer 201404138

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 56. fundur - 06.05.2014

Lögð voru fram til kynningar drög að samningi við Dalvík/Reyni um framkvæmd á innheimtu og gæslu á tjaldsvæðum á Dalvík á Fiskidaginn mikla 2014. Samningurinn felur í sér gæslu og innheimtu frá þriðjudeginum 5. ágúst til mánudagsins 11. ágúst. Stefnt er að undirritun í næstu viku. Ráðið gerir ekki athugasemdir við samningsdrögin og samþykkir þau fyrir sitt leyti.