Frá fjármála-og stjórnsýslusviði, Skjalastefna Dalvíkurbyggðar og skjalaferlar. Drög að nýrri skjalastefnu.Til afgreiðslu.

Málsnúmer 201402053

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 704. fundur - 21.08.2014

Með fundarboði byggðarráðs fylgdu drög að nýrri skjalastefnu fyrir Dalvíkurbyggð sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og ritari / skjalastjóri hafa unnið að. Drögin hafa verið send til umsagnar forstöðumanns Héraðsskjalasafns Svarfdæla í Dalvíkurbyggð og búið er að taka tillit til ábendingar forstöðumannsins. Einnig voru drögin send til umsagnar framkvæmdarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum stefnuna eins og hún liggur fyrir.