Verkfallslisti Dalvíkurbyggðar; endurskoðun fyrir 1. febrúar 2014.

Málsnúmer 201312048

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 688. fundur - 16.01.2014

Tekin fyrir tillaga að verkfallslista Dalvíkurbyggðar, auglýsing um skrá yfir störf hjá Dalvíkurbyggð sem eru undanþegin verkfallsheimild, skv. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna með síðari breytingum, er falla undir 5.-8. tölulið.

Listinn var sendur til viðkomandi stéttarfélaga til umsagnar og óskað var svara eigi síðar en 14. janúar s.l. Viðbrögð hafa borist frá öllum félögum nema einu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlagðan lista.