Frá Einingu-Iðju; Ósk um upplýsingar um hækkun gjaldskráa.

Málsnúmer 201311190

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 682. fundur - 14.11.2013

Tekið fyrir erindi frá Einingu-Iðju, bréf dagsett þann 8. nóvember 2013, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu hvort áætlað sé í fjárhagsáætlun að hækka gjaldskrár þess fyrir árið 2014. Ef gjaldskrárhækkanir eru á döfinni þá er óskað eftir upplýsingum um hvaða gjaldaliðir hækka og hversu mikið, bæði í krónum og prósentum.




Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að svara ofangreindu erindi.