Tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar, skv. 8. gr. III. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar frá 14.02.2013.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201306040

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 248. fundur - 18.06.2013

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga forseta sveitarstjórnar, dagsett þann 14. júní 2013, um sumarleyfi sveitarstjórnar 2013:
Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2013.

Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 19. júní 2013 til og með 31. ágúst 2013.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta.