Frá Sveini Arndal Torfasyni; Beiðni um lausn frá störfum úr sveitarstjórn, ráðum og nefndum Dalvíkurbyggðar.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201306036

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 248. fundur - 18.06.2013

Tekið fyrir erindi frá Sveini Arndal Torfasyni, bréf dagsett þann 11. júní 2013, þar sem hann óskar eftir lausn frá störfum í sveitarstjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Sveini lausn frá störfum úr sveitarstjórn og nefndum sem hann á sæti í .

Sveitarstjórn færir Sveini bestu þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum.