Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Afskrift hlutabréfaeignar í Fiskeldi Eyjafjarðar vegna gjaldþrots.

Málsnúmer 201303171

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 659. fundur - 21.03.2013

Vegna vinnu við ársreikning 2012 óskar sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs eftir heimild til að afskrifa hlutbréfaeign Dalvíkurbyggðar í Fiskeldi Eyjafjarðar vegna gjaldþrots fyrirtækisins; að upphæð kr. 12.965.410. Við gerð ársreiknings 2011 var gert ráð fyrir niðurfærslu á móti þessari hlutabréfaeign að upphæð kr. 12.565.985.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum afskrift á hlutabréfaeign Dalvíkurbyggðar í Fiskeldi Eyjafjarðar.