Unglingalandsmót UMFÍ 2016 - Auglýst eftir umsóknum

Málsnúmer 201302029

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 44. fundur - 05.03.2013

Fyrir liggur vilji íþrótta- og æskulýðsráðs að halda unglingalandsmót á næstu árum. Til að til framkvæmdar á unglingalandsmóti geti komið þarf að ráðast í endurbætur á íþróttasvæðinu en engin ákvörðun um slíkt hefur verið tekin á þessum tímapunkti og sér íþrótta- og æskulýðsráð sér því ekki fært að sækja um að þessu sinni.