Brekkusel - beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 201203147

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 225. fundur - 04.04.2012

Með bréfi sem dagsett er 29. mars 2012 óskar Sýslumaðurinn á Akureyri eftir umsögn á umsókn Óskars Óskarssonar f.h. Skíðafélags Dalvíkur um rekstur á gistiskála að Brekkuseli undir nafninu Brekkusel. Um er að ræða rekstrarleyfi samkvæmt gististaðaflokki III.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við að framangreint leyfi verði veitt að uppfylltum ákvæðum reglugerða.

Björgvin Hjörleifsson vék af fundi við afgreiðslu á þessu máli.