Íbúafundur um skipulagsmál

Íbúafundur um skipulagsmál

Íbúafundur vegður haldinn í Menningarhúsinu Bergi, Dalvík, þriðjudaginn 28. mars kl. 19:30. Til fundarins er boðað til að kynna deiliskipulagstillögur sem eru í vinnslu hjá sveitarfélaginu. Fundarstjóri verður Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar.

Dagskrá fundarins:

Kynning á deiliskipulögum samkvæmt gr.40 skipulagslaga nr.123 frá 2010

  • Deiliskipulag þjóðvegarins gegnum Dalvík, fulltrúar frá Eflu verkfræðistofu og Vegagerðinni kynna stöðu verkefnisins.
  • Deiliskipulag við Svarfaðarbraut, Ágúst Hafsteinsson skipulagsráðgjafi kynnir verkefnið.

Fyrirhuguð skipulög - staða.

  • Deiliskipulag við Dalbæ, Ágúst Hafsteinsson skipulagsráðgjafi kynnir verkefnið.
  • Deiliskipulag á Árskógssandi,
  • Deiliskipulag ofan Böggvisbrautar
  • Deiliskipulag sunnan Dalvíkur.
  • Aðalskipulag 2025-2045

 

Boðið verður uppá súpu og brauð.