Hjóladagur í Bergi 7. júní kl. 11:00 - 13:00

Hjóladagur í Bergi 7. júní kl. 11:00 - 13:00

Miðvikudaginn 7. júní verður hjóladagur í Bergi frá kl. 11:00 - 13:00.

Að þessu sinni ætlum við að bjóða upp á létta smurningu og yfirferð en stærri viðgerðir verða ekki í boði. Allir geta komið með fákana sína og fengið sápuþvott fyrir sumarið. Auk þess mun lögreglan heimsækja okkur og fara yfir öryggisbúnað hjólanna og veita ráðgjöf.

Við hvetjum foreldra til þess að koma með börnunum sínum og minnum á hjálmana.