17. júní dagskrá

17. júní dagskrá

Kl. 08:00    Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!

Kl. 11:00    17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.

Kl. 13:00    Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.

Kl. 13:30    Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi

  • Ávarp fjallkonunnar
  • Hátíðarræða 
  • Leikhópurinn Lotta
  • Tónlistaratriði
  • Það spáir karamellurigningu í kringum Berg


Að lokinni hátíðarstund við Berg:

  • Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.
  • Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
  • Sápubolti, vatnsrennibraut, og fleira skemmtilegt.
  • Í tilefni af 20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar verða að auki 3 hoppukastalar fyrir börnin.

Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.

Myndlistasýning í Bergi opin frá 12 - 17. 
Sigríður Huld Ingvarsdóttir sýnir olíu og kolamyndir. 
Allir velkomnir.

Hátíðarkaffi
Barna– og unglinaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.

Kl. 18:30 - 21:00    Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. , Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja!  Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar. Allir velkomnir - frítt inn.

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ