Sólstöður er fjölþjóðlegt tríó sem skartar sumum af efnilegustu jazztónlistarmönnum hver frá sínu heimalandi. Bandið skipa Mikael Máni á gítar, hollenski píanóleikarinn Stefan Bos og svisslenski kontrabassaleikarinn Pierre Balda.
Í Nóvember 2024 mun 2. plata hljómsveitarinnar Sólstöður koma út. Þríeykið hefur spilað saman í nánast tíu ár í Hollandi, Sviss og verður þetta í þriðja skipti sem bandið spilar á Íslandi. Fyrsta platan þeirra kom út árið 2020 og var gefin út af Smekkleysu. Hún vakti mikla ánægju meðal tónlistarunnenda og gagnrýnanda og hlaut hljómsveitin tilnefningu fyrir bestu tónsmíðar ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum.
Platan inniheldur lög eftir alla meðlimi bandsins, sérstaklega samin með þessa einstöku hljóðfæraskipan í huga; trommulaust tríó með tveim hljóma hljóðfærum. Þetta er suðupottur marga stíla sem væri hægt að skilgreina sem kammer-jazz. Leiðarljós bandsins er að reyna að fanga stemmingu hvers lags. Mörg lög eru lyrísk og rómantísk á köflum og stundum má heyra einhver áhrif neóklassískrar tónlistar glitta fram. Hinsvegar eru önnur lög sorgleg, dramatísk og nánast hættuleg.
Mikael Máni er einn helsti gítarleikari landsins og var plata hans ‘Innermost’ fyrr á árinu valin plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum. Á árinu kom einnig út fyrsta sólógítarplata hans hjá þýska útgáfufyrirtækinu ACT sem er ein af leiðandi útgáfum í jazztónlist.
Árskógi, 621 Dalvíkurbyggð Sími: 460 4970 |
Skólinn er opinn frá Skólastjóri: Friðrik Arnarson |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 460-4973; 460-4970 / arskogarskoli@dalvikurbyggd.is