Viðvörun vegna óveðurs!

Viðvörun vegna óveðurs!

Þar sem gefin hefur verið út viðvörun á landinu öllu vegna óveðurs í kortunum er fólk vinsamlegast beðið að fylgjast vel með skólahaldi á morgun. Ef til þess kemur að skólahaldi sé aflýst er það auglýst með sms til foreldra og frétt sett á heimasíðu skólans og á facebooksíðu skólans. Vinsamlegast virðið þær viðvaranir sem eru í gangi og fylgist vel með, umfram allt, farið varlega!

Ferli skólans ef óveður gengur í garð má lesa hér: Óveður og Árskógarskóli

Frétt frá Ríkislögreglustjóra-Almannavarnadeild: http://almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=8&module_id=220&element_id=3400

Skólastjórnendur