Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin

Miðvikudaginn 2. mars fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk í Bergi þar sem 2 nemendur úr Árskógarskóla, 3 nemendur úr Grunnskóla Fjallabyggðar og 4 nemendur úr Dalvíkurskóla kepptu í upplestri. Allir nemendur stóðu sig með pýði og var þetta hin hátíðlegasta stund. Þau Aníta Rut og Jón Egill lásu upp fyrir hönd Árskógarskóla og stóðu sig mjög vel. Svo fór að Birna Björk Heimisdóttir, Grunnskóla Fjallabyggðar sigraði, í öðru sæti varð Urður Birta Helgadóttir úr Dalvíkurskóla og í þriðja sæti varð Jón Egill Baldursson úr skólanum okkar, Árskógarskóla. Til hamingju krakkar!

Nemendur í 7. bekk, Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð

1. sæti, Birna Björk Heimisdóttir, 2. sæti, Urður Birta Helgadóttir, 3. sæti, Jón Egill Baldursson.