Starfsmaður óskast í leikskóla

Starfsmaður óskast í leikskóla

Árskógarskóli auglýsir eftir starfsmanni á leikskóla í 75% starf frá og með 4. janúar til 9. júlí 2021. Vinnutími er frá 10-16. Árskógarskóli leitar að öflugum einstaklingi í starfið sem mögulega gæti einnig tekið að sér umsjón með félagsheimilinu í Árskógi sem unnin verður í yfirvinnu.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð færni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnáttu æskileg

 

Umsóknarfrestur um stöðuna er til og með 30. desember 2020.

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

Frekari upplýsingar veita Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 og 849 0980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is og Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildarstjóri í síma 460 4970 eða í netpósti jona@dalvikurbyggd.is.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 12 börn á leikskólastigi, 24 nemendur í 1. – 7. bekk. Gott samstarf og samvinna er á milli leik- og grunnskóla. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli.