Nýtt skólaár 2015-2016

Nýtt skólaár 2015-2016

Gott fólk, þriðjudaginn 11. ágúst opnar skólinn á ný eftir sumarleyfi sem vonandi var öllum gott. Allt starfsfólk kemur til starfa í vikunni og undirbýr 4. starfsár Árskógarskóla. Upplýsingar um skólabyrjun grunnskólastigs er að finna í fréttabréfi hér neðar á síðunni. Innkaupalista grunnskólastigs er einnig að finna hér að neðan en 1. bekkingar þurfa ekkert að kaup sem fyrr þar sem Promens gefur tösku og námsgögn, bréf um afhendingu verður sent innan tíðar. Sem sagt, við mætum hress og kát í 4. starfsár skólans og við hlökkum til að vinna með öllum þeim sem að skólanum koma. Sjáumst í skólanum.