Lokanir föstudag og mánudag

Lokanir föstudag og mánudag

Föstudaginn 29. janúar er starfsdagur Dalvíkurbyggðar og starfsfólk á námskeiði í Bergi eftir hádegi. Þann dag lokar skólinn eftir hádegismat og öll börn leik- og grunnskólastigs farin heim í helgarfrí kl. 12°°. Skólabíllinn fer af stað kl. 12°°.

Mánudaginn 1. febrúar er skipulagsdagur, starfsfólk að störfum en nemendur leik- og grunnskólastigs eru í fríi.