LEGO nýsköpun

LEGO nýsköpun

Í skólanámskrá Árskógarskóla er fjallað um grunnþáttinn sköpun. Þar segir:

,,Nám á sér stað þegar einstaklingur vinnur með áreiti, tengir það fyrri þekkingu og skapar nýja. Þannig er menntun í rauninni sjálfssköpun, leið upplýsts einstaklings til að verða ,,meira í dag en í gær“. Sköpunarþrá á sér rætur í meðfæddri forvitni, athafnaþrá og stuðlar að frumkvæði einstaklingsins. Sköpunargleði leiðir til námsáhuga þegar börn og ungmenni skynja merkingu viðfangsefnanna og gildi þeirra. Í sköpun felst að móta viðfangsefni og miðla þeim, búa til, gera eitthvað nýtt eða öðruvísi en viðkomandi kann eða hefur gert áður. Sköpun er að uppgötva, njóta, örva forvitni og áhuga, virkja ímyndunarafl og leika sér með möguleika. Sköpun er að sjá fyrir það óorðna og framkvæma það. Sköpun byggist á forvitni, áskorun, spennu og leit. Glíman við viðfangsefnið og það að finna lausn getur verið umbun sköpunarinnar í sjálfu sér. Sköpun brýtur hefðbundin mynstur, reglur og kerfi og veitir nýja sýn á fyrirbæri og viðteknar hugmyndir (Aðalnámskrár leik,- grunn og framhaldsskóla, 2011). "

Í skólanum eru ýmsar leiðir farnar til þess að efla þennan grunnþátt í námi nemenda og m.a. unnið með fjölbreyttan efnivið. Nemendur fá tækifæri til að vinna með ýmsar gerðir kubba og meðal annars er LEGO vinsælt. Þess vegna var mjög jákvætt að fá

Jóhann Breiðfjörð í heimsókn með 100 kg af LEGO kubbum sem hélt námskeið fyrir nemendur 1.-4. bekkjar. Nemendur lærðu meðal annars að nota tannhjól, gíra, mótora og sitthvað fleira til að skapa sín eigin módel. Nýsköpun, gleði og gaman.