Lausar kennarastöður

Lausar kennarastöður

Lausar kennarastöður í Árskógarskóla Dalvíkurbyggð

*Við auglýsum eftir leikskólakennara/uppeldismenntuðum einstaklingi í 80-90% starf frá 14. ágúst 2018.

**Við auglýsum eftir umsjónarkennara sem getur líka kennt list- og verkgreinar, tímabundið skólaárið 2018-2019, ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst.

Árskógarskóli er leik- og grunnskóli sem tók til starfa 1. ágúst 2012. Í skólanum eru 40 börn frá 9 mánaða aldri til og með miðstigi grunnskóla. Hér starfar skemmtilegt fólk í 7 stöðugildum. Skólinn vinnur með hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, við erum Grænfánaskóli, vinnum í aldursblönduðum hópum, þvert á skólastig og nýtum allt umhverfi skólans til leiks og náms. Árskógarskóli er staðsettur við þjóðveginn, í Árskógi, 12 km frá Dalvík og 34 km frá Akureyri.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í störfin
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Hefur virðingu, jákvæðni, metnað, gleði og umhyggju að leiðarljósi
  • Tilbúin/n að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
  • Hreint sakarvottorð

Árskógarskóli er reyklaus vinnustaður.

Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/

Upplýsingar gefur Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri

í síma 460-4971, 699-1303.

Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið gunnthore@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.

Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2018