Jólakveðja

Jólakveðja

Senn líður að jólum og áramótum og við starfsfólkið þökkum nemendum, foreldrum og öllum þeim sem að skólanum koma fyrir gott samstarf á árinu. Við erum bjartsýn og tökum á móti árinu 2018 með eftirvæntingu og jákvæðni. Gleðileg jól og farsælt komandi ár, takk fyrir góðar stundir og hafið það sem allra best um jól og áramót.

Grunnskólastig fer í jólaleyfi miðvikudaginn 20. desember kl. 10:30 strax eftir litlu jólin. Leikskólastig fer í jólaleyfi kl. 16:00 þann 22. desember. Skólinn er lokaður milli jóla- og nýárs. Sjáumst hress þann 3. janúar 2018 er skólinn opnar á ný eftir jólaleyfi.