Jólaföndur

Jólaföndur

Hó hó hó það er komið að því sem allir hafa beðið eftir, jólaföndur fjölskyldunnar í Árskógarskóla.

Jólaföndur Árskógarskóla verður þriðjudaginn 5. desember frá kl. 16:30-19:00 í Árskógarskóla. Efni til föndurgerðar selt á staðnum auk þess sem seldar verða veitingar (enginn posi, bara seðlar). Gott að grípa með sér skæri.

Allur ágóði rennur í ferða- og skemmtisjóð nemenda og þætti okkur vænt um að sjá sem flesta.

Allir velkomnir, kær kveðja

Nemendur, starfsfólk og foreldrafélag Árskógarskóla