Jóla- og nýárskveðja

Jóla- og nýárskveðja
Jóla- og nýárskveðja

Senn líður að jólum og áramótum sem þýðir að 5. starfsár Árskógarskóla er hálfnað. Við starfsfólkið þökkum nemendum, foreldrum og öllum öðrum sem að skólanum koma fyrir gott samstarf á árinu. Við erum bjartsýn og tökum á móti árinu 2017 með eftirvæntingu og jákvæðni. Gleðileg jól og farsælt komandi ár, takk fyrir góðar stundir.

Grunnskólastig fer í jólaleyfi þriðjudaginn 20. desember kl. 10:30 strax eftir litlu jólin. Leikskólastig fer í jólaleyfi kl. 16:00 þann 23. desember. Skólinn er lokaður milli jóla- og nýárs. Sjáumst hress þann 3. janúar 2017 er skólinn opnar á ný eftir jólaleyfi.