Innkaupalistar 2016-2017

Innkaupalistar 2016-2017

Gott fólk, sumarið er tíminn sem sumir nýta til að undirbúa næsta skólaár, kaupa námsgögn ofl. Hér er því að finna innkaupalista 2.-4. bekkjar fyrir skólaárið 2016-2017. Um að gera að nýta það sem til er heima, muna svo að merkja allt vel og vandlega! Promens gefur öllum nemendum í 1. bekk skólatösku og pennaveski með öllum námsgögnum, sem er frábært, svo enginn listi er fyrir 1. bekk. Foreldrar fá bréf um stað og stund er skólatöskurnar verða afhentar.