Fréttabréf apríl. Takk fyrir árshátíð!

Fréttabréf apríl. Takk fyrir árshátíð!

Góðan dag. Takk öll sem mættuð á árshátíðina, 120 gestir, frábær frammistaða nemenda eftir mikinn og skapandi undirbúning. Við í skólanum erum afar stolt af þessum krökkum. Við erum líka afar þakklát ykkur foreldrum sem sáuð til þess að allir gestir fengu gómsæta súpu og brauð eftir sýningu í ykkar boði, takk fyrir allt. Framundan er eitt og annað s.s. páskafrí og vert að kynna sér fréttabréf apríl.