Fiðla og fótstigið

Fiðla og fótstigið

Í dag á gæðastund skólans (á miðvikudögum hittist allur skólinn og gerir eitthvað skemmtilegt) fengum við aldeilis skemmtilega heimsókn tveggja frábærra tónlistarmanna sem eru Lára Sóley Jóhannsdóttir og Eyþór Ingi Jónsson. Þau hlutu í sumar styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra til þess að ferðast með skólatónleikaprógram um starfssvæði sjóðsins sem nær frá Siglufirði til Bakkafjarðar. Nánari lýsing á verkefninu er þessi:

Yfirskrift tónleikanna er Fiðla og fótstigið. Um er að ræða fræðandi, skapandi og aðgengilegt tónleikaprógram sem ætlað er nemendum á leik-, grunn- og framhaldskólaaldri. Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti og harmóníumleikari flytja tónlist eftir mörg af þekktustu tónskáldum veraldar í nýjum búningi þar sem útsetningar og spuni setja létta stemmningu og gera tónlistina enn aðgengilegri hlustendum. Leitast er við að ná fram þjóðlegri áferð en flytjendur eru í þjóðbúningum og notast jafnframt við skjávarpa þar sem myndum og fræðslu frá viðeigandi tónlistartímabilum er varpað upp. Hlustendur eru virkir þátttakendur í tónleikunum meðal annars með söng og klappi. Um er að ræða sjálfsprottið starf sem stuðlar að fjölbreyttari menningarstarfi sem sniðið er sérstaklega fyrir börn og ungmenni. Með tónleikunum vilja flytjendur auka áhuga á klassískri tónlist og ala upp hlustendur og leikendur þess konar tónlistar. Ferðast var í grunnskóla Akureyrar vorið 2015 og vöktu tónleikarnir mikla hrifningu meðal nemenda og kennara.

Sem sagt, afar skemmtilegir tónleikar þar sem nemendur og starfsfólk nutu saman hverrar mínútu. Lára og Eyþór hrósuðu börnum skólans mikið fyrir að vera afbragð tónleikagestir, húrra fyrir þeim.