Árshátíðarmyndir

Árshátíðarmyndir

Góðan dag gott fólk, takk fyrir komuna á árshátíð skólans 10. mars. Við erum afar stolt af okkar nemendum sem stóðu sig svo vel að dansa, syngja og leika Kardimommubæinn. Að setja saman leikrit þar sem nemendur leik- og grunnskólastigs frá 3-13 ára eru einn leikhópur er mikil vinna og undirbúningur. Skólinn býr að svo frábæru starfsfólki, nemendum og foreldrum og þegar allt er lagt saman þá verður úr sýning og samverustund eins og við áttum á árshátíðinni, góð skemmtun og góð súpa á eftir hjá foreldrafélaginu. Við erum stolt af skólanum okkar og öllum þeim sem að honum koma. Takk fyrir okkur! Nokkrar myndir af árshátíð en miklu fleiri í myndasafninu (lykilorðið er í símanum ykkar).