1. bekkingar fá tösku og gögn

1. bekkingar fá tösku og gögn

Góðan dag. Við njótum þess að eiga öflug fyrirtæki í heimabyggð á margvíslegan hátt. Sæplast Iceland á Dalvík mun á ný gefa öllum 1. bekkingum í Dalvíkurbyggð skólaárið 2016-2017 skólatösku að gjöf auk allra námsgagna af innkaupalista skólanna sem og pennaveski. Hér er bréf til foreldra þar sem þetta er tilkynnt. Við þökkum Sæplasti kærlega fyrir og foreldrar fá fljótlega bréf um afhendingu.