Sögugerð

Sögugerð

Nemendur í 1.-3. bekk unnu með Sögugrunninn í ritunarvinnu á dögunum. Í Gæðastund í vikunni lásu nemendurnir upp sögur eftir sig þar sem komu fram margar litríkar persónur sem lentu í miklum ævintýrum. Útkoman varð skemmtileg og fjölbreytt og það skein í gegn að ímyndunarafl nemenda fékk að njóta sín.