Leikskólakennari óskast við Árskógarskóla

Leikskólakennari óskast við Árskógarskóla

Árskógarskóli auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf frá og með 19. ágúst 2021. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.

Leikskólakennari, menntun og hæfni:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð færni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
  • Góð íslenskukunnáttu æskileg

Umsóknarfrestur um stöðuna er til og með 18. ágúst 2021.

 

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

 

Frekari upplýsingar veitir Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildarstjóri í síma 460 4971 eða í netpósti jona@dalvikurbyggd.is