Hjóladagur, vorhreinsun, almenn gleði!

Hjóladagur, vorhreinsun, almenn gleði!

Gott fólk.

Næsta föstudag 26. maí verður árleg vorhátíð í skólanum. Við ætlum að hreinsa rusl í nágrenninu, setja upp hjólabraut, fara í leiki, grilla pylsur og fara í sund. 

Nemendur mega sem sagt koma með hjól/þríhjól/hjólabretti/línuskauta ofl. þess háttar þennan dag en algjört skilyrði er að mæta þá einnig með hjálm og þar til gerðar hlífar.

ATH. Það er ekki leyfilegt að hjóla í eða úr skóla nema í fylgd með foreldrum og á þeirra ábyrgð. Foreldrar þurfa að koma hjólum barna sinna í skólann og heim. 

Þennan dag er skólinn, eins og alltaf, opinn öllum sem vilja taka þátt og gleðjast með okkur í vorgleði.

Vorkveðja frá nemendum og starfsfólki Árskógarskóla

p.s. muna að það er lokað á fimmtudag (uppstigningardag 25. maí).