Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í dag. Tólf lesarar kepptu um tvö laus sæti á Lokakeppni Stóru upplestarkeppninnar sem haldin verður 21. mars kl. 16:00 í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri. Skólarnir sem etja þar kappi auk Dalvíkurskóla eru: Grunnskóli Fjallabyggðar, Grenivíkurskóli, Hrafnagilsskóli og Þelamerkurskóli.

Dómnefnd valdi þá Árna Stefán og Mána til að vera fulltrúa skólans og Úlfhildi Emblu til vara. Á myndinni hér til hliðar eru lesararnir 12 ásamt umsjónarkennurum.