Dalvíkurskóli var settur í gær. 25 nemendur byrjuðu í 1. bekk og var mikil spenna og eftirvænting í andlitum þegar krakkarnir fengu skólatöskur afhentar. Fyrirtækið Snorrason Holdings á Dalvík gaf 1. bekkingum töskur og skóladót og eru þeim færðar kærar þakkir fyrir það.
Auk nýrra nemenda í 1. bekk byrjuðu 16 nemendur sem voru áður í Árskógarskóla í 8. og 9. bekk og 18 nýnemar sem komu til okkar úr öðrum skólum. Við bjóðum ykkur velkomin í Dalvíkurskóla!
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is