Í Dalvíkurskóla hefur myndast hefð fyrir því að meistararnir haldi eitt matarboð á ári. Í ár héldu Pétur Geir og Rúnar Smári matarboð fyrir strákana sem eru komnir í framhaldsskóla og einnig buðu þeir vinkonu sinni henni Herborgu Harðardóttur. Pétur Geir og Rúnar Smári eru í 10. bekk og ætla báðir að fara í MTR eins og hinir meistararnir. Í matarboðinu var framtíð þessa hóps rædd því þetta hefur verið eitt af skólaverkefnunum að halda matarboð. Hópurinn ætlar að hittast á hverju ári og elda saman og svo ætlar Herborg að bjóða í potta partý í maí ár hvert.



|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is