Það var virkilega gaman að fylgjast með krökkunum okkar í gær, þar sem þau hlupu áheitahlaup til styrktar UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þau fengu kynningu á starfi UNICEF á föstudaginn var, söfnuðu áheitum og hlupu svo í gær, sumir rúma 12 kílómetra! Næst er að safna saman áheitafénu og skila af sér. Dalvíkurskóli hefur haft þennan dag á dagskrá til fjölda ára og höfum við lagt UNICEF til hátt á fimmtu milljón króna í gegnum árin.
Vel gert krakkar - og fjölskyldur, kærar þakkir fyrir þátttökuna og stuðninginn!
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is