Nemendur í 5. – 6. og 7. bekk Dalvíkurskóla hafa undanfarnar 4 vikur verið að vinna með efni sem Námsgagnastofnun gaf út og heitir Á ögurstundu. Þetta efni er um björgunarsveitir og þeirra hlutverk. Félagar úr Björgunarsveitinni Dalvík komu í skólann miðvikudaginn 29. okt og fimmtudaginn 30. okt og kynntu fyrir nemendum fyrstu hjálp þar sem nemendur fengu að setja hvort annað í hálskraga, spelkur og voru sett á bakbretti og börur. Einnig var þeim kynnt klifur þar sem nemendur fengu fræðslu í búnaði klifurs og lærðu að gera pelastik og áttu hnút. Þau fóru út í leit þar sem kynnt var fyrir þeim nokkrar gerðir leitar og voru faldar vísbendingar sem þau þurftu að finna. Þá fengu þau fræðslu í snjóflóðum og snjóflóðabúnaði. Þeim var kennt að afmarka svæði, nota snjóflóðastangir og fengu að leita með snjóflóðaýlum. Nemendur voru mjög ánægðir með þessa vinnu. Hér má sjá fleiri myndir.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is