Útivistardagur í fjallinu hjá nemendum 4.-6. bekkjar

Útivistardagur í fjallinu hjá nemendum 4.-6. bekkjar

Þriðjudaginn 13. mars er áætlað að hafa útivistardag hjá 4.-6. bekk Dalvíkurskóla, ef veður leyfir.  Nemendur fara í fjallið.

Mæting er við skíðaskálann Brekkusel klukkan 7:50 – 8:30 og eiga nemendur að setja sig þar í samband við umsjónarkennara. Hver bekkur getur geymt dótið sitt á sérmerktum svæðum. Nemendur eiga að koma vel klæddir, með hjálm, skíði, bretti, sleða eða þotur. (Munið að merkja allt vel). Ekki er leyfilegt að vera með dekkjaslöngur í fjallinu. Leyfilegt verður að vera á sleðum og þotum á ákveðnu svæði. Vel útilátið nesti er nauðsynlegt, skólinn býður upp á heitt kakó handa öllum. Munið eftir aukafötum (sokkum, vettlingum, peysu...). Nauðsynlegt er að nemendur séu með HJÁLMA. Það er alfarið á  ábyrgð foreldra ef krakkarnir koma hjálmlausir. Útivistardagur stendur frá kl. 8:00/8:30 – 13:05. Foreldrum er þó frjálst að sækja börn sín eftir kl. 12:00. Matur verður í Brekkuseli kl. 11:30 – 12:00.

Nemendur geta fengið skíðabúnað og hjálma að láni sér að kostnaðarlausu.

Ef veðrið verður andstyggilegt, rigning, rok eða stórhríð eiga nemendur að mæta í skólann og verður þá venjulegur skóladagur.

Munum að virða þær reglur sem gilda á skíðasvæðinu.

 

 

Ef þið hafið athugasemdir skuluð þið hafa samband við Katrínu Fjólu deildarstjóra eða Gísla skólastjóra.