Útivistardagur á eldra stigi 27. janúar

Við stefnum að því að vera með útivistardag á eldra stigi á morgun, föstudaginn 27. janúar, EF VEÐUR LEYFIR. Ákvörðun um það verður tekin síðdegis. Vinsamlega fylgist með á heimasíðu skólans, en þar verða settar inn frekari upplýsingar. Hér að neðan eru frekari upplýsingar um daginn.

Föstudaginn 27. janúar er áætlað að hafa útivistardag hjá 7. – 10. bekk Dalvíkurskóla, ef veður leyfir.  Nemendur fara í fjallið.

Mæting er við skíðaskálann Brekkusel klukkan 8:00 – 8:30, og eiga nemendur að setja sig þar í samband við kennara sem kennir fyrsta tíma á föstudögum. Nemendur eiga að koma vel klæddir með skíðin sín, brettin, sleða. Ekki er leyfilegt að vera með dekkjaslöngur í fjallinu. Leyfilegt verður að vera á sleðum á ákveðnu svæði. Vel útilátið nesti er nauðsynlegt, skólinn býður upp á heitt kakó handa öllum. Munið eftir aukafötum (sokkum, vettlingum, peysu......) í bakpokann. Ætlast er til að nemendur séu með HJÁLMA. Það er alfarið á ábyrgð foreldra ef krakkarnir koma hjálmalaus. Útivistardagur stendur frá kl. 8:00/8:30 – 13:00. Matur verður í Brekkuseli frá kl. 11:30 – 12:00.
 
Boðið verður upp á leigu á skíðabúnaði nemendum að kostnaðarlausu.
 
Ef veðrið verður andstyggilegt, rigning, rok eða stórhríð eiga nemendur að mæta í skólann og verður þá venjulegur skóladagur.
 
Munum að virða þær reglur sem gilda á skíðasvæðinu.
 
 
ATH ! Ef einhverjar athugasemdir eru endilega hafa samband við Friðrik/Gísla