Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Til að vekja athygli á tannverndarvikunni í skólaumhverfinu er samstarf við starfsfólk skóla afar mikilvægt og í áranna rás hefur verið lögð áhersla á gerð fræðsluefnis og verkefna um tannvernd. Í ár gefur Lýðheilsustöð út veggspjaldið „Þitt er valið“ sem ætlað er að auðvelda fólki á öllum aldri að átta sig á sýrustigi og sykurinnihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á íslenskum markaði og mögulegum áhrifum þess á tannheilsu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is