Stuðningsfulltrúi óskast við Dalvíkurskóla

Stuðningsfulltrúi óskast við Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 70% starf frá og með 15. febrúar til 9. júní 2021. Vinnutími er frá 8:00 – 13:35. Dalvíkurskóli leitar að öflugum einstaklingi í starfið með reynslu af því að vinna með börnum.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Starfsreynsla í grunnskóla æskileg
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð færni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnáttu æskileg

Umsóknarfrestur um stöðuna er til og með 12. febrúar 2021.

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

Frekari upplýsingar veita Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.

Dalvíkurskóli er 216 barna grunnskóli sem leggur áherslu teymiskennslu og góð samskipti. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskólar og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.