Starf umsjónarkennara í Dalvíkurskóla

Starf umsjónarkennara í Dalvíkurskóla

Við erum að leita að frábærum umsjónarkennurum, frá 1. ágúst 2014, í okkar öfluga starfsmannahóp í Dalvíkurskóla. Okkar vantar kennara bæði á yngra og eldra stig.

Gildi Dalvíkurskóla eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan

Dalvíkurskóli er grunnskóli með um 250 nemendum í 1.-10. bekk. skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, við erum Grænfánaskóli og leggjum mikla áherslu á skólaþróun. Í skólanum er unnið að tilraunaverkefni með spjaldtölvur í einum árgangi, unnið er að aukinni samkennslu árganga og teymisvinnu kennara og rík hefð er fyrir fjölbreyttum kennsluháttum.

Menntunarkröfur:

  • Réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun er kostur

Hæfniskröfur:

  • Hæfni í samvinnu og samskiptum - reynsla af teymiskennslu er kostur
  • Góð færni í bekkjarstjórnun - reynsla af vinnu eftir uppbyggingastefnunni er kostur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Mikill áhugi á skólaþróun
  • Áhugi á kennslu og vinnu með börnum
  • Frumkvæði og samstarfsvilji
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Gleði og umhyggja
  • Hreint sakarvottorð

Þekking og reynsla af notkun upplýsingatækni í skólastarfi, byrjendalæsi og/eða Orð af orði er æskileg en ekki skilyrði.

Umsóknarfrestur er til 13. júní 2014.

Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli  

Upplýsingar gefur Björn Gunnlaugsson skólastjóri í síma 460-4983 eða bjorn@dalvikurbyggd.is  .

Senda skal umsókn og ferilskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila á netfangið bjorn@dalvikurbyggd.is  og verður móttaka umsókna staðfest.