Við erum að leita að frábærum umsjónarkennurum, frá 1. ágúst 2014, í okkar öfluga starfsmannahóp í Dalvíkurskóla. Okkar vantar kennara bæði á yngra og eldra stig.
Gildi Dalvíkurskóla eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan
Dalvíkurskóli er grunnskóli með um 250 nemendum í 1.-10. bekk. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, við erum Grænfánaskóli og leggjum mikla áherslu á skólaþróun. Í skólanum er unnið að tilraunaverkefni með spjaldtölvur í einum árgangi, unnið er að aukinni samkennslu árganga og teymisvinnu kennara og rík hefð er fyrir fjölbreyttum kennsluháttum.
Dalvíkurbyggð er tæplega 2000 manna sveitarfélag á fallegum stað við Eyjafjörð, steinsnar frá Akureyri. Á Dalvík er frábær aðstaða til íþróttaiðkunar og útiveru, glæsilegt menningarhús og barnvænt umhverfi.
Menntunarkröfur:
Hæfniskröfur:
Þekking og reynsla af notkun upplýsingatækni í skólastarfi, byrjendalæsi og/eða Orð af orði er æskileg en ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2014.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli
Upplýsingar gefur Björn Gunnlaugsson skólastjóri í síma 460-4983 eða bjorn@dalvikurbyggd.is .
Senda skal umsókn og ferilskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila á netfangið bjorn@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is