Spurningakeppni grunnskólanna

Í dag klukkan 16:30 keppir spurningalið skólans í undanúrslitum við lið Vallaskóla á Selfossi. Þau Jóhann, Aníta og Viktor Daði munu þó ekki þurfa að leggja land undir fót til að etja kappi við andstæðingana. RUV tekur viðureignina upp og verður spurningaliðið okkar staðsett í skólanum og notast við samskiptaforritið Skype. Vonandi verður liðið áfram á sigurbraut í dag.