Slæm veðurspá

Við viljum biðja foreldra að fylgjast vel með veðri og veðurspá þriðjudaginn 8. desember og meta hvort óhætt er að senda börn í skólann. Skólinn verður opinn, en gera má ráð fyrir því að skólahald verði ekki með hefðbundnu sniði ef veðurspáin gengur eftir. Foreldrar rútubarna munu fá upplýsingar (SMS) ef ferðir skólabíla falla niður.

Nánari upplýsingar verða settar inn á heimasíðuna að morgni 8. desember.