Skólaslit Dalvíkurskóla

Skólaslit Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóla var slitið við hátíðlega athöfn 5. júní. 36 nemendur voru útskrifaðir úr skólanum og óskum við þeim alls hins besta í framtíðinni. Aðrir nemendur skólans eru komnir í sumarfrí til 25. ágúst.

Við þökkum nemendum, foreldrum, starfsfólki og öllum þeim sem komið hafa að skólastarfi fyrir samstarfið í vetur. Hafið það gott í sumar og við hlökkum til að hitta ykkur á næsta skólaári.