Skólasetning

Skólasetning

Dalvíkurskóli var formlega settur í dag, fimmtudaginn 23. ágúst. Gísli Bjarnason skólastjóri tók á móti nemendahópum á sal og bauð þau velkomin. Í ræðu skólastjóra kom fram að í vetur verða um 220 nemendur í skólanum og um 50 starfsmenn. Hann lagði áherslu á að nemendur vandi sig í samskiptum og hafi jákvæðni í leik og starfi að leiðarljósi. Einnig kom fram að samkvæmt könnun sem gerð var hjá nemendum hefur einelti minnkað í Dalvíkurskóla, og hvatti nemendur til að vera vakandi og útrýma einelti í skólanum alveg.

Gísli minnti nemendur á hversu nauðsynlegt það sé að hafa metnað í námi og hrósa hvort öðru þegar vel gengur, ekki bara í íþróttum heldur í öllu námi. Einnig að nemendur þurfi að hafa trú á sjálfum sér og sýna þrautseigju í námi.

Hann hvatti alla til að taka vel á móti nýjum nemendum, bæði þeim sem eru að byrja í fyrsta bekk og einnig þeim sem eldri eru og hjálpa þeim að aðlagast í skólanum okkar.

Gísli þakkaði Sæplasti fyrir að gefa nemendum í 1. bekk skólatösku, pennaveski og vasareikni, einnig Dalvíkurbyggð fyrir að skaffa nemendum önnur námsgögn.

Að lokum talaði Gísli um að hann vonaðist eftir góðu samstarfi við nemendur, foreldra og forráðamenn og að framundan væri vinna við að gera góðan skóla enn betri.