Skemmtileg heimsókn

Skemmtileg heimsókn

Við í 1. EoE fengum elstu krakkana af Kátakoti í heimsókn til okkar. Þessi heimsókn var jafnframt síðasta skólaheimsókn þeirra á þessu skólaári. Við byrjuðum á því að leika okkur öll saman úti á skólalóð í frjálsum leik. Eftir frímínútur buðum við gestum okkar upp á heimabakað bakkelsi og ískalda mjólk. Því næst lékum við okkur inni á nokkrum stöðvum. Leikskólakrakkarnir enduðu heimsóknina með Grétu kennara sem gaf hverjum og einum fyrir hönd skólans blýant og strokleður. Við þökkum krökkunum og kennurum þeirra kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá þessa skemmtilegu krakka í skólanum næsta haust. Hérna sjáið þið nokkrar myndir frá þessari heimsókn.