Síðasti skóladagur 1. EoE

Síðasti skóladagur 1. EoE

Við í 1. EoE eyddum stórum parti af síðasta deginum okkar austur á sandi. Nemendur skemmtu sér vel við sandkastalagerð og vatnsburð. Nokkrir foreldrar voru búnir að baka handa okkur ýmislegt góðgæti og gæddum við okkur á því í kuldanum og sandfokinu. Eftir ferðina voru margir blautir og kaldir en ánægjan skein þó enn úr andlitum þeirra. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu ferð okkar í 1. EoE.