Síðasta skólavikan

Síðasta skólavikan er runnin upp og er fjölbreytt dagskrá í boði fyrir nemendur. 10. bekkur verður í skólaferðalagi frá mánudegi til fimmtudags. Íþróttadagur á yngra stigi er í dag og á eldra stigi á morgun, þriðjudag. 6. bekkur skoðar Síldarminjasafnið, 7. bekkur fer út í Hrísey og síðan verður boðið upp á göngutúra, skoðunarferðir o.fl.

Skólaslit verða á fimmtudag.

1. - 5. bekkur kl. 10:00

6. - 8. bekkur kl. 11:00.

9. og 10. bekkjar verða kl. 20:00.